Site icon Útvarp Saga

Stjórnmálamenn taka við skipunum frá Brussel og svíkja þjóðina

Hallur Hallsson sagnfræðingur og fjölmiðlamaður

Íslenskir stjórnmálamenn svíkja þjóðina með því að taka við fyrirskipunum frá höfuðstöðvum Evrópusambandsins í Brussel og eru þannig komnir á band glóbalistanna. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Halls Hallssonar sagnfræðings fjölmiðlamanns og fyrrverandi fréttamanns sjónvarps í síðdegisútvarpinu í dag.

Hallur segir að flestir þeir stórnmálamenn sem fara í ferðir til Brussel virðast hringsnúast í skoðunum eftir ferðirnar

og þeir taka síðan við skipunum frá Brussel úr kjallaraholum Evrópusambandsins og svíkja þjóðina og þá dreymir um að verða kjallaramýs í framtíðinni í Brussel, þeir ætla sér að framselja orkuauðlindirar í hendur Evrópuambandsins“ segir Hallur.

Hallur sem er sem fyrr segir fyrrverandi fréttamaður Sjónvarps segir fréttaflutning RÚV vera í takt við glóbalismans

þarna hafa sósíalistar og glóbalistar tekið miðilinn yfir og hafa tekið úr sambandi málfrelsið„,segir Hallur.

Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

https://utvarpsaga.is/wp-content/uploads/viðtal-hallur-hallsson-27-ágúst.mp3
Deila þessari frétt á samfélagsmiðla