Réttmæti framboðs Braga til Barnaréttarnefndar SÞ óljóst
Píratar segja í tilkynningu sinni að meðal þeirra fjölmörgu spurninga sem enn sé ósvarað sé til dæmis hvort framboð Braga Guðbrandssonar til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna eigi rétt á sér.
„Þingflokkur Pírata furðar sig á yfirlýsingum forsætisráðherra vegna málsins í Stundinni þann 27. apríl síðastliðinn þar sem ráðherra segir: „Engin gögn um efnislegar niðurstöður velferðarráðuneytisins í kvörtunarmálum barnaverndarnefnda gegn Barnaverndarstofu voru lögð fyrir ríkisstjórn Íslands þann 23. febrúar þegar samþykkt var að bjóða Braga Guðbrandsson fram til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir Ísland hönd“. Í niðurstöðu úttektaraðila vegna málsins segir þvert á móti að félags- og jafnréttismálaráðherra hafi ritað „minnisblað til ríkisstjórnar Íslands 13. desember 2017 þar sem farið var yfir kvartanir barnaverndarnefndanna þriggja og upplýst um meðferð málsins. Þetta ósamræmi þarfnast skýringa“, segir í yrfirlýsingunni.