er að skipta með sér verkum og boða til almenns félagsfundar sem tekur afstöðu til framboðsmála Pírata í bæjarfélaginu.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður flokksins var meðal þeirra sem sátu fundinn en hún segir stofnun félagsins vera gott dæmi um þá siglingu sem flokkurinn er á í dag „Stofnun Pírata í Mosfellsbæ er enn eitt dæmið um þá miklu siglingu sem Píratar eru á, við getum verið stolt af hreyfingunni okkar. Píratar eru komin til að vera,“ . Þórhildur Sunna er sjálf uppalin í Mosfellsbæ og eru foreldrar hennar enn búsettir þar í dag, hún segir gott að vera í Mosfellsbæ. „Hér á ég rætur að rekja. Hér búa foreldrar mínir og hingað kem ég oft eftir langa þingdaga og nýt þeirrar lukku að eyða tíma í fangi fjölskyldunnar í fallegu umhverfi Mosfellsbæjar. Hér líður mér eins og ég sé komin í friðsæla sveitina umlukin Reykjarlundarskóginum og í nágrenni Álafoss og Varmár. Hér er gott að slaka á og gleyma erli dagsins.“