Site icon Útvarp Saga

Ráðherra kynnti sér starfsemi þjóðgarðsins á Þingvöllum

Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, heimsótti í gær Þjóðgarðinn á Þingvöllum þar sem hún kynnti sér meðal annars þá starfsemi sem þar fer fram. Björt hefur frá því hún tók við embætti einsett sér að heimsækja þær stofnanir sem heyra undir ráðuneytið. Með heimsókninni í gær hefur hún þar með heimsótt allar stofnanir ráðuneytisins. Fimmtán stofnanir heyra undir umhverfis- og auðlindaráðherra og er hefð fyrir því að ráðherra kynni sér starfsemi þeirra með heimsóknum eftir embættistöku. Í heimsóknunum gefst ráðherra kostur á að hitta starfsfólk stofnananna, kynna sér rekstur þeirra, stærstu viðfangsefnin hverju sinni og framtíðarsýn.
Þær stofnanir sem ráðherra hefur heimsótt undanfarna mánuði eru Náttúrufræðistofnun Íslands, Umhverfisstofnun, Veðurstofa Íslands, Skipulagsstofnun, Landgræðsla ríkisins, Mannvirkjastofnun, Íslenskar orkurannsóknir, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Vatnajökulsþjóðgarður, Úrvinnslusjóður, Skógræktin, Náttúrurannsóknarstöðin við Mývatn, Landmælingar Íslands, Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála og nú síðast Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla