Í tilkynningunni segir jafnframt að styrking krónunnar sé til marks um bætta stöðu Íslands og að mikil eftirspurn eftir íslenskum vörum og þjónustu styrki gengið sem gerir Ísland að dýrari kosti. Staðan kalli á gamalkunnar hættur og krefjist mikils aga í hagstjórn. Styrking krónunnar og veruleg hækkun launa setji útflutningsatvinnuvegi í vanda og rýri samkeppnishæfni hagkerfisins. Hin jákvæðu skilyrði sem leika nú um efnahagslífið geti því fljótt snúist upp í andhverfu sína. Í tilkynningunni segir enn fremur að mikilvægt sé að greina vel þegar líður að næstu skrefum í áætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta. Þá segir að þeim sérfræðingar sem ráðherranefndin felur að fara yfir stöðuna munu á næstu vikum eiga fundi með hagsmunaaðilum til þess að varpa sem bestu ljósi á aðstæður og fá þeirra hugmyndir að úrbótum.