Site icon Útvarp Saga

Ráðherranefnd í jafnréttismálum fundaði með sendinefnd OECD

Ráðherranefnd í jafnréttismálum fundaði með sendinefnd á vegum Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD í vikunni. Marcos Bonturi, yfirmaður stjórnsýslu- og stefnumótunarsviðs OECD, Tatyana Teplova, yfirmaður samþættrar stefnumótunar, og Scherie Nicol, sérfræðingur í kynjaðri hagstjórn, skipuðu sendinefnd OECD. Þá sat Kristján Andri Stefánsson, sendiherra og fastafulltrúi Íslands hjá OECD einnig fundinn.
Sendinefnd OECD kynnti áherslur sínar um samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða við stefnumótun og Kristján Andri Stefánsson gerði grein fyrir verkefninu „Friends for Gender Equality Plus“ á vegum OECD. Þá var árangur og stefna Íslands í jafnréttismálum rædd, svo og hvaða aðgerða stjórnvöld geta gripið til í því skyni að gera enn betur og tryggja að jafnréttismál séu ætíð í forgrunni þegar kemur að ákvarðanatöku þeirra. Þá voru möguleikar á samstarfi og samþættingu á sviði jafnréttismála á milli OECD og Íslands einnig ræddir.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla