Verkefnið sem bar sigur úr býtum er samvinnuverkefni Öldrunarheimila Akureyrar, Akureyrarkaupstaðar, Lyfjavers ehf. og Þulu – Norræns hugvits.
ALFA sem er stafræn lausn á lyfjaumsjónarkerfi var þróuð í þeim tilgangi að einfalda lyfjaskráningu, utanumhald á lyfjalager og samskipti á milli öldrunarheimila og birgja. Fram kemur í umsögn að verkefnið hafi leitt til mikillar hagræðingar og umbóta í rekstri öldrunarheimila.
Fjögur verkefni hlutu sérstaka viðurkenningu á ráðstefnunni:
- Vatnajökulsþjóðgarður fyrir „Sjálfvirk innheimta og aðgangsstýring“;
- Ísafjarðarbær fyrir „Blábankinn, samfélagsmiðstöð á Þingeyri“;
- Kópavogsbær fyrir „Social Progress Portrait; Mælikvarði á félagslegar framfarir í Kópavogi og MÆLKÓ“
- Skútustaðahreppur fyrir „Umbótaáætlun í fráveitumálum í Mývatnssveit“.
Ráðstefnan var mjög vel sótt en skráðir voru rúmlega 190 þátttakendur frá um hundrað stofnunum, sveitarfélögum og fyrirtækjum. Ráðstefnan er samstarfsverkefni fjármála- og efnahagsráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Félags forstöðumanna ríkisstofnana, Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands.