Auk ávarps Þorkels Ágústssonar við setningarahöfn í morgun fluttu ávarp Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytis, Geirþrúður Alfreðsdóttir, formaður rannsóknarnefndar samgönguslysa og formaður ISASI, Frank Del Gandio
Í ávarpi sínu fjallaði Ragnhildur Hjaltadóttir um þema ráðstefnunnar, Sérhver hlekkur er mikilvægur og sagði það góða lýsingu á verkefnum rannsakenda flugslysa. Við rannsókn á flugatviki eða slysi væru skoðaðir fjölmargir samverkandi þættir í því skyni að finna út hvort eða hvernig þeir hefðu átt þátt í slysi. Því væri grundvallaratriði að tengja alla þessa þætti saman. Þakkaði hún forráðamönnum ISASI einnig fyrir að halda ráðstefnuna að þessu sinni á Íslandi og minnti á hversu Íslendingar væru háðir flugsamgöngum.
Rúmlega 300 manns sitja ráðstefnuna.Meðal sérfræðinga sem fluttu erindi í dag var Ragnar Guðmundsson, rannsakandi á flugsviði hjá RNSA, sem fjallaði um rannsókn nefndarinnar á slysi á Sukhoi Superjet 100 flugvél sem magalenti á Keflavíkurflugvelli sumarið 2013 þegar hún var í flugprófunum á vegum rússneska flugvélaframleiðandans Sukhoi. Einnig verður fjallað um rannsókn á flugvél Malaysia Airlines, flugi MH17, sem fórst við landamæri Rússlands og Úkraínu sumarið 2014 og rannsókn á flugi þýska flugfélagsins German Wings sem fórst í frönsku Ölpunum í mars 2015.
Þá verður fjallað um ýmis sértæk efni eins og notkun dróna til að búa til þrívíddarmyndir af slysavettvangi til að styðja við rannsóknir, um öryggi í farþegarými, hvernig almennt er hægt að auka öryggi í flugi með margs konar aðgerðum, hvernig rannsóknargögn eru varðveitt og gætt að trúnaði við meðferð þeirra.