Úrslitakvöld Skrekks, hæfileikakeppni skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur fóru fram í gærkvöld. Réttarholtsskóli sigraði í ár með atriðið Þetta unga fólk sem er gagnrýni á hvernig hinir eldri líta niður til unglingamenningar. Í öðru sæti var Fellaskóli með atriðið Efra Breiðholt og í þriðja sæti var Seljaskóli skóli með atriðið Yndislegt líf.
Í ár tóku 24 skólar og 630 unglingar tóku þátt í undanúrslitum. Átta skólar komust áfram í úrslitin. Atriðin að þessu sinni fjalla um sjálfsmynd unglinga, áhrif samfélagsmiðla, tónlistar- og danssögu, missi, einelti, andlega erfiðleika, upplifun ungmenna af erlendum uppruna, mikilvægi þess að njóta lífsins og hafa gaman, ádeilu á íslenskt samfélag, heimilisofbeldi og ástarsögur. Unglingarnir semja atriðin og nýta allar sviðslistir í þau auk þess sem þau sjá um búninga, förðun, hár, ljós hljóð og nú í fyrsta skipti í Skrekk, skjávarpa
- Árbæjarskóli, Svið lífsins
- Sæmundarskóli, Af hverju ég?
- Seljaskóli, Yndislegt líf
- Réttarholtsskóli, Þetta unga fólk
- Fellaskóli, Efra Breiðholt
- Hagaskóli, Gleym mér ey
- Langholtsskóli, Hin fullkomna þjóð
- Seljaskóli, Yndislegt líf
- Austurbæjarskóli, Kemur í ljós
Skrekkur er samstarfsverkefni grunnskóla og félagsmiðstöðva Reykjavíkur, og RÚV.