Samhliða nýju útgáfunni gerði ríkissjóður tilboð í eldri skuldabréfaútgáfu frá árinu 2014 sem nam 750 milljónum evra. Eigendur bréfa að nafnvirði 397,6 milljónir evra eða um 49 ma.kr. tóku tilboði ríkissjóðs og fengu þeir sem vildu forgang í nýju útgáfunni. Heildarskuldsetning ríkissjóðs eykst um 12,5 ma.kr. við aðgerðina.
„Þessi útgáfa markar tímamót en ríkissjóður hefur aldrei tekið lán á hagstæðari kjörum,“ segir Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra. „Viðbrögð fjárfesta voru vel umfram væntingar en eftirspurn var ríflega átta sinnum meiri en framboðið. Þátttakan í endurkaupunum og eftirspurn eftir nýju útgáfunni er merki um traust fjárfesta og er viðkurkenning á þeim góða árangri sem náðst hefur ríkisfjármálum og við stjórn efnahagsmála. Hækkun lánshæfismats Fitch í síðustu viku hefur án efa einnig haft jákvæð áhrif. Aðgerðin er liður í að framfylgja langtímastefnu í lánamálum ríkisins þar sem markmiðin eru meðal annars þau að tryggja aðgengi að erlendum lánsfjármörkuðum til lengri tíma og að stórum og fjölbreyttum hópi fjárfesta og setur mikilvægt viðmið á hagstæðum kjörum fyrir aðra sem þurfa aðgang að erlendum lánsfjármörkuðum,“ segir Bjarni Benediktsson.