Site icon Útvarp Saga

Ríkisstjórnin og stjórnarandstaðan ættu að taka Akureyringa til fyrirmyndar og vinna meira saman

Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness.

Það væri mjög til bóta ef ríkisstjórnin tæki þá sem sitja í minni og meirihluta bæjarstjórnar Akureyriarbæjar til fyirmyndar og starfi meira saman. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Vilhjálms Birgissonar formanns Verkalýðsfélags Akraness í síðdegisútvarpinu í dag en hann var viðmælandi Péturs Gunnlaugssonar.

Eins og kunnugt er var meirihluti bæjarstjórnar á Akureyri lagður niður í gær og samstarf minni og meirihluta tekið upp til þess að takast á við skuldavanda bæjarins.

Vilhjálmi líst vel á samstarfið og ekki síst þær ákvarðanir sem þegar hafa verið teknar, meðal annars að lækka laun embættismanna og bæjarfulltrúa

það væri gaman að sjá þetta gert á þinginu einnig, þannig myndu nást í gegn góð mál og hlutirnir ganga hraðar fyrir sig, já það mætti sannarlega taka Akureyringa sér til fyrirmyndar, „segir Vilhjálmur.

Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

https://utvarpsaga.is/wp-content/uploads/viðtal-vilhjálmur-birgisson-23.09.20.mp3
Deila þessari frétt á samfélagsmiðla