Hingað til hefur fargjald verið nokkru hærra á leiðinni milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar en til Landeyjahafnar. Gjald fyrir farþega til Landeyjahafnar er kr. 1.380 aðra leiðina og með bíl er það alls kr. 3.600 en gjaldið til Þorlákshafnar hefur verið kr. 3.420 fyrir farþega og 6.840 ef farþeginn er með bíl. Framvegis verður því sama gjald fyrir ferðir Herjólfs og hefur gjaldskrárbreytingin þegar tekið gildi, breytingin tekur þó ekki til atvinnubifreiða.