Vigdís Hauksdóttir borgarstjóraefni Miðflokksins segir með hreinum ólíkindum og sérlega ósvífið hvernig Steingrímur J. Sigfússon þáverandi fjármálráðherra hafi rétt hrægömmum ríkiseigur í þeim tilgangi að þeir gætu keypt nýja banka. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Vigdísar í síðdegisútvarpinu í dag en hún var gestur Péturs Gunnlaugssonar “ þeim voru réttar skuldir heimilanna og það virði sem var í þeim, fengu það á hrakvirði til þess að borga út í nýjum banka, þetta stendur allt í skýrslunni minni og þetta er málflutningur okkar Víglundar, hann var að skoða Arion banka en ég var með alla bankana undir, þetta er svo lygilegt að ríkisstjórn í sjálfstæðu ríki skuli lúta svo í lægra haldi að heimilin skuli vera skiptimynt í svona makki að það er alveg með ólíkindum að engin skuli bara sitja hreinlega í fangelsi fyrir þetta„,segir Vigdís.
Smelltu hér til þess að lesa skýrslu Vigdísar um einkavæðingu bankanna hina síðari.
Smelltu hér til þess að skoða fleiri gögn um einkavæðingu bankanna.