Site icon Útvarp Saga

Segja ljóst frá upphafi að langt hafi verið á milli flokkanna í viðræðum

thingiLjóst var frá upphafi að langt hafi verið á milli flokka í stjórnarmyndunarviðræðunum sem fram hafa farið undanfarna daga og nú hefur verið slitið. Þetta kemur í tilkynningu frá Vinstri grænum sem send var á fjölmiðla. Í tilkynningunni segir orðrétt „ Undanfarna daga hafa Vinstri græn, Viðreisn, Björt framtíð, Píratar og Samfylkingin átt í formlegum viðræðum um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Að þeim hafa komið komið yfir þrjátíu manns fyrir hönd flokkanna sem lagt hafa fram mikla vinnu við að skapa grundvöll fyrir samstarfi þeirra í ríkisstjórn. Góður andi var í viðræðunum og fyrir lá að víða var ágætur samhljómur um málefni. Frá upphafi var þó ljóst að töluvert langt var á milli flokkanna í ýmsum málefnum, ekki síst hvað varðar fjármögnun nauðsynlegrar uppbyggingar í heilbrigðisþjónustu og menntamálum. Í dag kom í ljós að ekki voru allir flokkarnir með sannfæringu fyrir því að halda viðræðunum áfram og það var því niðurstaða Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri grænna að viðræðum yrði ekki fram haldið„.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla