Auk þess að meta mögulegan ávinning, faglegan og fjárhagslegan, af aukinni aðkomu Landhelgisgæslunnar að sjúkraflugi, hvort heldur með þyrlum eða öðrum flugvélum, er starfshópnum einnig falið að meta aðra mögulega kosti þyrlusjúkraflugs, meðal annars með hliðsjón af þeim tillögum sem kynntar voru í skýrslu fagráðs um sjúkraflutninga frá árinu 2017. Í þeirri skýrslu fjallaði fagráðið um notkun á þyrlum hér á landi til að sinna flutningi á bráðveikum og slösuðum sjúklingum.
Formaður starfshópsins er Elsa B. Friðfinnsdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu. Aðrir nefndarmenn eru Hjörtur Kristjánsson, framkvæmdastjóri lækninga á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Ólafur Gunnarsson, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu, Sigurður Einar Sigurðsson, fulltrúi Sjúkratrygginga Íslands, Inga Þórey Óskarsdóttir, fulltrúi dómsmálaráðuneytisins, Sandra M. Sigurjónsdóttir, fulltrúi Landhelgisgæslu Íslands og Viðar Magnússon fulltrúi Fagráðs sjúkraflutninga.