Sem fyrr segir verður hlutverk starfshópsins að endurskoða núverandi fyrirkomulag um úthlutun tollkvóta og finna leiðir til þess að koma ávinningnum sem skapast með þessum takmörkuðu gæðum í meira mæli til neytenda í formi lægra vöruverðs.
Gert er ráð fyrir að starfshópurinn ljúki störfum í nóvember á þessu ári og jafnframt skila skýrslu með tillögum til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Í starfshópnum sitja:
- Óli Björn Kárason, alþingismaður, formaður
- Arnar Freyr Einarsson, hagfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu
- Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna
- Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur hjá Bændasamtökum Íslands
- Tryggvi Másson, sérfræðingur á efnahagssviði Samtaka atvinnulífsins
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir endurskoðun regluverksins mikilvæga: “Tollasamningar Íslands og Evrópusambandsins sem tóku gildi 1. maí sl. fela í sér umtalsverða stækkun tollkvóta sem koma til framkvæmda á næstu árum. Því er mikilvægt að staldra við og endurskoða það hvernig við úthlutum þessum takmörkuðu gæðum. Í mínum huga er grundvallaratriði að mögulegar breytingar skili sér með sem bestum hætti til neytenda í formi lægra vöruverðs og aukins vöruúrvals.”