Site icon Útvarp Saga

Stjórnvöld ætla að bæta neysluvenjur landsmanna með neyslustýringu

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti fyrir ríkisstjórn í dag tillögur Embættis landlæknis um að breyta álögum á tiltekin matvæli til bæta neysluvenjur landsmanna. Fram kemur að tillögurnar séu í samræmi við ráðleggingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um aðgerðir til að efla lýðheilsu og draga úr heilsufarslegum ójöfnuði.
Svandís segir mikilvægt að stjórnvöld fjalli um tillögur Embættis landlæknis, enda sé það lagt til í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að kostir þess að beita efnahagslegum hvötum til að efla lýðheilsu verði skoðaðir.
Í minnisblaði Landlæknisembættisins til heilbrigðisráðherra er áhersla lögð á að lýðheilsusjónarmið verði höfð til hliðsjónar við beitingu efnahagslegra hvata þannig að þeir virki sem forvarnaraðgerð og verði til þess að bæta heilsu landsmanna. Bent er á að sykurneysla sé mjög mikil hér á landi, hún sé yfir ráðlagðri hámarksneyslu meðal ungs fólks og barna og í samanburði við hinar Norðurlandaþjóðirnar sé neysla á sykruðum gosdrykkjum og sykurríkum vörum mest hér á landi. Þessar neysluvenjur auki líkur á offitu og tannskemmdum og geti aukið líkur á sykursýki af tegund tvö.
Embætti landlæknis segir að vísindalegur grundvöllur þess að beita vel skipulagðri skattlagningu á matvæli ásamt fleiri aðgerðum til að bæta neysluvenjur sé að styrkjast og sé hvað sterkastur þegar mat er lagt á heilsufarslegan ávinning af skattlagningu sykraðra drykkja.
Eftirfarandi eru tilögur Embættis landlæknis sem heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar í dag:

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla