Site icon Útvarp Saga

Styðja við útgáfu barna og unglingabóka með auknum fjárframlögum

Nýjum styrkjaflokki fyrir barna og unglingabækur verður bætt við styrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta frá og með næsta ári. Þetta liður í því að styðja við og efla útgáfu á efni fyrir yngri lesendur. „Eitt það mikilvægasta sem við getum gert til þess að efla læsi í landinu til framtíðar og standa vörð um tungumálið okkar er að tryggja aðgengi barna og ungmenna að bókum við þeirra hæfi,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. „Ég finn fyrir vitundarvakningu og aukinni umræðu um mikilvægi lesturs og bóka – hjá foreldrum, skólafólki og ekki síst hjá krökkunum sjálfum. Það er okkar að skapa umhverfið og vera þeim góðar fyrirmyndir. Það er til dæmis hægt að gera í dag, á alþjóðlegum degi bókarinnar – með bók í hönd.“ segir Lilja
Fram kemur í tilkynningu að framtakinu sé ætlað að styðja við menningarstefnu stjórnvalda þar sem lögð er sérstök áhersla á að efla menningu barna og ungmenna á landinu öllu. Þá segir í tilkynningunni að hlutverk Miðstöðvar íslenskra bókmennta sé fyrst og fremst að efla bókmenningu á Íslandi, kynna íslenskar bókmenntir erlendis og stuðla að aukinni útbreiðslu þeirra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla