Site icon Útvarp Saga

Svona getur þú greitt atkvæði ef þú ert í sóttkví

Kjósendum sem verða í sóttkví eða einangrun á kjördag, og geta því ekki greitt atkvæði á almennum kjörstað eða almennum utankjörfundarstað, er heimilt að greiða atkvæði á sérstökum utankjörfundarstöðum.

Kosning á sérstökum og þar til gerðum utankjörfundarstað hefjast í dag og því geta þeir sem vilja nýta sér þetta úrræði gert það frá og með deginum í dag. Á vefsíðu sýslumennsembættanna eru staðsetningar auglýstar sérstaklega.

Svona fer atkvæðagreiðslan fram

Kjósandi sem greiðir atkvæði á sérstökum utankjörfundarstað þarf að koma á bifreið á kjörstaðinn. Honum er óheimilt að opna dyr eða glugga bifreiðarinnar og hann skal vera einn í bifreiðinni. Kjósandi fær ekki kjörgögn í hendur heldur upplýsir hann kjörstjóra um hvernig hann vilji greiða atkvæði, t.d. með því að sýna blað með listabókstaf framboðs eða á annan hátt sem kjörstjóri telur öruggan og nægilega skýran.

Mikilvægt er að kjósendur hafi með sér blað og ritföng til að gera grein fyrir vilja sínum og hafi með sér skilríki.

Einnig heimilt að kjósa á dvalarstað

Kjósanda sem er í einangrun eða sóttkví á kjördag er heimilt að greiða atkvæði á dvalarstað sínum. Vilji kjósandi nýta sér atkvæðagreiðslu á dvalarstað þarf hann að senda beiðni þess efnis beint til sýslumanns í því umdæmi þar sem viðkomandi dvelst. Sé dvalarstaður kjósanda innan kjördæmis hans þarf beiðnin berast sýslumanni eigi síðar en kl. 10:00 á kjördag, en sé dvalarstaður kjósanda utan kjördæmis hans eigi síðar en kl. 10:00 fimmtudaginn 23. september 2021. Beiðninni þarf að fylgja staðfesting heilbrigðisyfirvalda á að viðkomandi sé í einangrun eða sóttkví fram yfir kjördag og upplýsingar um hvers vegna þeim sem er í sóttkví er ekki unnt að greiða atkvæði á sérstökum utankjörfundarstað.

Kjósandi fær ekki kjörgögn í hendur heldur upplýsir hann kjörstjóra um hvernig hann vill greiða atkvæði t.d. með því að sýna blað með listabókstaf framboðs eða á annan hátt sem kjörstjóri telur öruggan og nægilega skýran.

´Í sérstöku ákvæði kemur fram að synja megi kjósanda um að greiða atkvæði á dvalarstað telji sóttvarnayfirvöld að atkvæðagreiðslu verði ekki við komið án þess að tefla heilsu kjörstjóra eða annarra í hættu og er þá sú ákvörðun endanleg.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla