Site icon Útvarp Saga

Telja ekki ráðlegt að breyta skattlagningu á ökutæki og eldsneyti

Starfshópur sem unnið hefur að endurskoðun skattlagningar ökutækja og eldsneytis hefur skilað skýrslu til fjármála- og efnahagsráðherra. Hópnum sem skipaður var í febrúar 2016 var falið að að rannsaka núverandi fyrirkomulag og framkvæmd skattlagningar ökutækja og eldsneytis, leggja til breytingar á gildandi lögum og gera tillögu að framtíðarstefnu stjórnvalda í þessum efnum. Við endurskoðunina var hópnum gert að vinna að eftirfarandi markmiðum:
Fram kemur í skýrslu starfshópsins að hann telji gildandi kerfi skattlagningar ökutækja og eldsneytis í meginatriðum einfalt og haganlegt og telur ekki skynsamlegt að það taki stakkaskiptum. Hins vegar leggur hópurinn til að gerðar verði breytingar sem taka tillit til þróunar sem á sér stað um þessar mundir á samsetningu og notkun ökutækja.
Í skýrslu starfshópsins er meðal annars að finna umfjöllun um breytingar sem hafa orðið og eru að verða á mælingu og upplýsingagjöf evrópskra bifreiðaframleiðenda um losun og mengun frá ökutækjum. Þar sem fyrirsjáanlegt er að upplýsingar um koltvísýringslosun frá ökutækjum muni breytast eru settar fram tillögur sem ætlað er að draga úr líkum á að misræmi skapist við skattlagningu ökutækja.
Smelltu hér til þess að skoða skýrslu starfshópsins

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla