Thorbjørn Jagland og fjárflæði úr norska ríkissjóðnum til Bill og Hillary Clinton

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu í þættinum Fréttir vikunnar um Thorbjørn Jagland, feril hans í alþjóðastofnunum, greiðslur úr norska ríkissjóðnum til Bill og Hillary Clinton og til alþjóðlegra sjóða og hvernig nafn hans birtist í umræðu um Epstein-skjölin. Þar var farið yfir embættisferil Jaglands, stöðu hans innan Evrópuráðsins og fjárflæði í gegnum þróunarsjóði. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Embætti Thorbjørns Jaglands og aðkoma hans að alþjóðastofnunum

Í þættinum kom fram að Thorbjørn Jagland sem nú sætir rannsókn norsku efnahagsbrota lögreglunnar gegndi embættum forsætisráðherra Noregs og utanríkisráðherra áður en hann varð framkvæmdastjóri Evrópuráðsins. Þá var einnig farið yfir að hann sat sem formaður norsku Nóbelsnefndarinnar. Bent var á að þessi embætti veittu aðgang að alþjóðlegu tengslaneti stjórnmála, mannréttindastofnana og stefnumótunar á alþjóðavettvangi. Epstein skjölin sýna að veruleg tengsl hafi verið á milli Jaglands og Epstein sem hafi verið fjárhagsleg og á ýmsum öðrum sviðum.

Evrópuráðið sett í miðju umræðunnar

Í þættinum var Evrópuráðið nefnt sem lykilvettvangur þar sem Jagland var formaður í 10 ár. Þá var greint frá því að innan Evrópuráðsins færu fram ákvarðanir og samráð sem næðu til dómstóla, nefnda og stefnumótunar í mannréttindamálum. Bent var á að staða framkvæmdastjóra hefði áhrif á samskipti milli ríkja og stofnana innan ráðsins.

Greiðslur úr norska ríkissjóðnum til Bill & Hillary Clinton Foundation

Þá var farið yfir greiðslur frá norska ríkinu til Bill & Hillary Clinton Foundation í gegnum þróunarsjóði og alþjóðlega samstarfssamninga. Í þættinum kom fram að um verulegar fjárhæðir væri að ræða og að þessar greiðslur væru hluti af stærra mynstri í alþjóðlegri þróunaraðstoð þar sem ríkissjóðir, einkasjóðir og alþjóðastofnanir tengdust saman.

Trump lét loka USAID, þróunarsjóði Bandaríkjanna

Rætt var um þegar Donald Trump tók við sem forseti í janúar s.l. hafi það verið eitt af hans fyrstu verkum að fá Elon Musk til að rannsaka fjárstreymi úr þróunarsjóði Bandaríkjanna, USAID sem hafi komist að því að gríðarleg misnotkun væri á greiðslum úr sjóðnum sem hefði verið ætlaðar til veikburða fólks, sérstaklega í Afríku. Það hefði komið í ljós að það fjármagn hefði ekki nema að litlu leyti skilað sér á réttan stað en hinsvegar látið á ýmsa fjölmiðla í Bandaríkunum og Evrópu. Í þeim gögnum hafi komið í ljós að dóttir Hillary og Bill Clinton, Chesle hafi fengið stórfé til þess að greiða fyrir brúðkaup sitt ásamt stórum peningagjöfum sem voru teknar úr þróunarsjóðnum. Í þættinum var greint frá því að samspil ríkissjóða, þróunarsjóða og alþjóðlegra verkefna myndaði flókið net fjármuna og ákvarðana þar sem erfitt væri að rekja nákvæma leið fjármagns frá upphafi til loka.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila