Site icon Útvarp Saga

Efla starf þriðja geirans og félagasamtaka

Ríkisstjórnin hefur samþykkt, að tillögu forsætisráðherra og ferðamála- iðnaðar og nýsköpunarráðherra, að veita fjórar milljónir króna til samstarfs um að efla starf þriðja geirans og félagasamtaka hér á landi. 

Gert er ráð fyrir að framlag ríkisins felist í aðstoð og fjárstuðningi við söfnun upplýsinga vegna rannsóknar á umfangi þriðja geirans og frumkvöðlastarfs innan hans, þátttöku í málþingum og öðrum sameiginlegum viðburðum og fjárframlagi til endurútgáfu handbókar um stjórnun og rekstur félagasamtaka.

Ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar, Almannaheill, samtök þriðja geirans, og Fræða- og þróunarsetur þriðja geirans við Háskóla Íslands, munu á næstu dögum undirrita viljayfirlýsingu um að vinna sameiginlega að eflingu félagslegs frumkvöðlastarfs og nýsköpunar. Viljayfirlýsingin er liður í starfi ríkisstjórnarinnar til eflingar á starfi félagasamtaka í samræmi við gildandi stjórnarsáttmála. Hún er einnig í samræmi við nýsköpunarstefnu fyrir Ísland þar sem m.a. kemur fram þörf á hugvitsdrifinni nýsköpun á öllum sviðum samfélagsins.

Samvinna aðila mun beinast að eftirfarandi verkefnum:

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla