Site icon Útvarp Saga

Þrír í gæsluvarðhald vegna líkamsárásar

Þrír karlmenn á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í átta daga gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. Fram kemur í tilkynningu að árásin hafi átt sér stað í fyrrinótt en ekki kemur fram hver málsatvik voru.

Þá segir að gæsluvarðhalds var krafist í málinu vegna rannsóknarhagsmuna. Samkvæmt upplýsingum lögreglu miðar rannsókn málsins vel.

Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan brotaþola og að sögn lögreglu verða ekki veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla