Trump undirbýr neyðarútsendingar og sértækar aðgerðir gegn djúpríkinu

Donald Trump forseti Bandaríkjanna vinnur nú með John F. Kennedy yngri heilbrigðisráðherra að umfangsmiklum aðgerðum sem ætlað er að uppræta djúpríkið í bandarísku stjórnkerfi. Samkvæmt upplýsingum sem nú eru í dreifingu er áætlunin komin á lokastig og undirbúningur fyrir víðtækar aðgerðir þegar hafinn. Fjallað er um málið á samfélagsmiðlinum X.

Aðgerðaáætlun undirbúin

Eftir áratugi þar sem talað hefur verið um skuggastarfsemi, leyndar upplýsingar og alþjóðlegt valdakerfi hafa þeir sem styðja aðgerðirnar sagt að tími sé kominn til að afhjúpa kerfið. Í þeirri áætlun sem nú er er verið að hrinda í framkvæmd gegnir neyðarútvarpskerfi Bandaríkjanna, Emergency Broadcast System, lykilhlutverki. Samkvæmt áætluninni mun forsetinn gefa merki um að virkja kerfið á sama tíma og umfangsmiklar aðgerðir hefjast. John F. Kennedy yngri á samkvæmt þessum upplýsingum að standa við hlið forsetans þegar tilkynningin verður send út.

Tíu dagar uppljóstrana

Í framhaldinu er gert ráð fyrir tímabili sem hefur verið kallað „tíu dagar myrkurs“. Þá er gert ráð fyrir að fjarskiptakerfi verði tekin yfir þannig að hefðbundnar sendingar sjónvarps, útvarps, síma og internets víki fyrir neyðarútsendingum. Á þessu tímabili á að birta upplýsingar sem sagðar eru varpa ljósi á umfangsmikla spillingu innan stjórnmála og alþjóðlegra valdakerfa. Þar á meðal eru sagðar koma fram játningar, handtökur sem áður hafa verið leyndar, afleyndar upptökur og upplýsingar um kosningasvik, mansal, lífvopnarannsóknir og tengsl valdaelítu við slíka starfsemi.

Herinn í viðbragðsstöðu

Samkvæmt stöðuskýrslu frá mars 2026 hefur verið gefin út viðbúnaðarviðvörun og umfangsmikill herafli er sagður staðsettur víðs vegar um Bandaríkin. Talið er að yfir ein milljón hermanna sé í viðbragðsstöðu vegna aðgerðanna. Einnig er sagt að tæknikerfi bandaríska geimhersins, Space Force, verði notað til að tryggja að neyðarútsendingar nái til almennings, meðal annars með aðstoð gervihnattanetsins Starlink.

Nýtt kerfi á að taka við

Í framhaldinu er gert ráð fyrir að herinn tryggi stöðugleika á meðan breytingar fara fram. Samhliða því á að hefjast umfangsmikil endurskipulagning fjármálakerfisins þar sem svokallaðar NESARA og GESARA áætlanir eiga að taka gildi. Samkvæmt þeim hugmyndum munu þær breytingar fela í sér róttæka endurskipulagningu alþjóðlega fjármálakerfisins og yfirfærslu auðs sem markar upphaf nýs stjórnskipulags.

Stuðningsmenn aðgerðanna segja að með þessu falli hið gamla kerfi sem hafi verið tengt spillingu og leynd, en í stað þess rísi ný endurreist stjórnarskrárbundin lýðveldisstjórn í Bandaríkjunum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila