Site icon Útvarp Saga

Ungt jafnaðarfólk fordæmir útlendingafrumvarp ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ungt jafnaðarfólk fordæmir útlendingafrumvarp ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur og segja það ómannúðlegt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ungu jafnaðarfólki.

Í tilkynningunni segir að:

„með frumvarpinu sé fólki í neyð hent á götuna og það svipt grunnþjónustu. Ekki fáist séð hvernig það samræmist mannréttindaákvæðum stjórnarskrár og alþjóðlegum skuldbindingum um mannréttindi. Þá sé gengið verulega á réttindi barna sem er í hrópandi ósamræmi við barnalög og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.“ 

Þá velti ungt jafnaðarfólk því fyrir sér hvar Framsókn standi í málinu.

„Hvar er barnamálaráðherrann sem sagðist ætla huga sérstaklega að börnum sem búa við erfiðar aðstæður? Er Ásmundur Einar kannski bara ráðherra sumra barna?“spyr unga jafnaðarfólkið. 

„Ungt jafnaðarfólk var slegið eftir áhorf á Silfrinu um helgina þar sem Jódís Skúladóttir, þingkona VG og talskona meirihlutans í útlendingamálinu staðfesti loks það sem okkur grunaði, að VG er ekki vinstri flokkur heldur einangrunarsinnaður íhaldsflokkur. Í stað þess að leggja áherslu á að fjárfesta í mikilvægum innviðum samfélagsins og styðja betur við grunnþjónustu gaf hún í skyn að fjöldi útlendinga væri vandamálið. Það hefur sömuleiðis verið sorglegt að fylgjast með framgöngu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og formanns VG í þessu máli – hún stendur þétt við bakið á Jóni Gunnarssyni og styður ómannúðlegt útlendingafrumvarp Sjálfstæðisflokksins.“segir jafnframt í tilkynningunni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla