Site icon Útvarp Saga

Útilokar ekki þjóðaratkvæðagreiðslu um sæstreng

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra útilokar ekki að ef til stæði að leggja sæstreng hingað til lands að málið færi í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta kom fram í máli Guðlaugs Þórs í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar. Guðlaugur segir að hann telji jafnframt að ef til slíkrar ákvörðunar í nánustu framtíð yrði ákvörðunin alltaf þjóðarinnar “ ég útiloka ekki þjóðaratkvæðagreiðslu og ef að einhver ætlaði að leggja sæstreng færi það alltaf til þjóðarinnar, hvort hægt sé að setja ætti slíkt í lagafrumvarp er eitthvað sem þingið þyrfti að skoða„,segir Guðlaugur. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

 

https://utvarpsaga.is/wp-content/uploads/síðdegi-a-2.5.19.mp3?_=1

https://utvarpsaga.is/wp-content/uploads/síðdegi-b-2.5.19.mp3?_=2

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla