Skortur á tæknikunnáttu og frágangur í molum
Þá bendir hann á að mikið skorti upp á tæknikunnáttu og búnað auk þess sem frágangur á svæðinu sé óásættanlegur „Frágangur í Helguvík er með öllu óásættanlegur. Ég hef lengi velt því fyrir mér hvernig leyfi fékkst fyrir því að reisa segldúksskemmur á opnu svæði þar sem vindar geta hæglega blásið þær niður. Þá er viðarkurl geymt í opnum haugum og hefur nú dreift sér yfir stórt svæði. Þetta er ekki í lagi.„.
Heilsa almennings njóti vafans umfram hagsmuni fjárfesta
Þórólfur segir ljóst að úrbóta sé þörf og að breyta þurfi lögum um mengunarvarnir “ ein af meginreglum alþjóðlegs umhverfisréttar, en kjarni hennar er sá að ekki skuli láta óvissu um afleiðingar til tekinna athafna eða athafnaleysis koma í veg fyrir að gripið sé til fyrirbyggjandi aðgerða. Í þessari reglu felst einnig sú hugsun að stjórnvöld geti ekki skýlt sér bak við vísindalega óvissu til að forðast varúðarráðstafanir. Fólk og heilsa þess eiga að njóta vafans umfram hagsmuni fjárfesta og pólitíska hagsmuni. Í því skyni væri lag að efla samstarf Embættis Landlæknis og Umhverfisstofnunar til að koma í veg fyrir mengun. Eínnig mætti gera auknar kröfur um menntun starfsfólks Umhverfisstofnunar sem veitir starfsleyfi og fylgi þeim eftir með eftirlisferðum, frekar en að treysta á álit iðnfyrirtækisins og ráðgjafa þess.„,segir Þórólfur.