Það hefur orðið mikil breyting til batnaðar í málefnum launafólks á undanförnum mánuðum, það þýðir þó ekki að slegið verði slöku við í verkalýðsbaráttunni.
Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Vilhjálms Birgissonar formanns Verkalýðsfélags Akraness í þætti Markúsar Þórhallssonar í dag.
Vilhjálmur segir að vaxtalækkun sem hefur skilað sér til launafólks sé þegar farin að hafa mjög jákvæð áhrif
“ eins og við höfðum búist við, fasteignagjöld hækka til dæmis mun minna hér á Akranesi ef við tökum bara eitt dæmi, við vinnum að því að hvetja fyrirtæki til þess að halda verrðlagi niðri eins og kostur er“
„ mér finnst hljóðið almennt nokkuð gott og menn eru alveg inni á þessu með okkur, það er auðvitað frábært, ég vonast til þess að við séum öll að róa í sömu átt„,segir Vilhjálmur.
Sykurskatturinn í andstöðu við lífskjarasamninginn
Vilhjálmur segir fyrirhugaðan sykurskatt vera þó í fullkominni andstöðu við lífskjarasamninginn
“ þar að auki hef ég ekki trú á svona forræðishyggju, ég bendi á að við höfum náð miklum árangri gegn tóbaksnotkun með fræðsluherferðum, það mætti fara svipaðar leiðir hvað sykurneysluna varðar„.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.