Sósíalistaflokkur Íslands vill að Reykajvíkurborg stofni og reki byggingarfélag sem hafi það að markmiði að byggja íbúðir fyrir þann hóp á í mestu húsnæðisvandræðunum. Sanna Magdalena Mörtudóttir segir nóg komið af braski á íslenskum húsnæðismarkaði og að tími brasksins sé liðinn „Almenningur getur ekki greitt hinum auðugu arð af öllum stigum íbúðabygginga, eins og staðan er í dag þurfum við að borga lóðabraskaranum sinn gróða, eigendum byggingavöruverslunarinnar sinn hagnað, verktakanum sína álagningu og eigendum leigufélagsins sinn arð. Þetta leggst ofan á alla vextina sem við borgum á endanum, vextina af okkar lánum og lánunum sem fyrirtækin taka. Fátækar fjölskyldur, láglaunafólk, lífeyrisþegar, öryrkjar og annað fólk sem er í húsnæðisvanda getur ekki staðið undir þessu öllu.“, segir Sanna. Daníel Örn Arnarson sem skipar annað sæti listans tekur í svipaðan streng “ „Við erum klemmd á milli lágra launa og okurleigu,húsnæðiskerfið er byggt upp svo að fáir aðilar geti hagnast sem mest: Lóðabraskarar, byggingarvörufyrirtæki, verktakar, húsaleigufyrirtæki. Hin verst settu geta ekki staðið undir hinum ríku. Þeir verða að finna sér aðra tekjulind en húsnæðiskreppu láglaunafólks.“, segir Daníel.