Site icon Útvarp Saga

Vilja kanna hvort þörf sé á stefnubreytingu í málefnum barna

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, fundaði á dögunum með umboðsmanni barna og fulltrúum Barnaheilla til að fjalla um málefni barna í víðu samhengi. Ráðherra vill efna til opinnar og faglegrar umræðu um það hvort þörf sé á stefnubreytingu í málefnum barna.
Ásmundur segir málefni barna vera sér hugleikin enda megi öllum vera ljóst hvað það skipti miklu máli fyrir velferð hvers og eins  barns og fyrir velgengni samfélagsins í heild þegar til framtíðar sé litið að vel sé búið að börnum og barnafjölskyldum. „Það þarf að huga sérstaklega að börnum og fjölskyldum sem eru í viðkvæmri stöðu, að veita þeim stuðning og eins að geta gripið tímanlega inní með aðstoð og úrræði þegar ljóst er að þeirra sé þörf“ segir ráðherra meðal annars.
Þá ræddi Ásmundur hugmyndir um mögulegar kerfisbreytingar þegar hann átti fundi annars vegar með Salvöru Nordal, umboðsmanni barna ásamt Stellu Hallsdóttur lögfræðingi, og hins vegar með Ernu Reynisdóttur, framkvæmdastjóra Barnaheilla, ásamt Margréti Júlíu Rafnsdóttur, í liðinni viku.
Á döfinni er að efna til fleiri funda um þessi mál á næstu vikum og opna fyrir umræðu um það hvort þörf sé á að kortleggja betur aðstæður barna og barnafjölskyldna, greina betur þörfina fyrir stuðning og þjónustu og móta skýrari stefnu á þessu sviði. „Mér finnst mikilvægt að heyra jafnt sjónarmið þeirra sem starfa í kerfinu sjálfu hjá ríki og sveitarfélögum og sjónarmið notenda og félagasamtaka sem starfa í þágu barna og barnafjölskyldna“  segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla