Ríkisstjórnarflokkarnir ættu að kalla grasrót og miðstjórnir flokkanna saman og fara yfir orkupakkamálið með henni. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Guðna Ágústssonar fyrrverandi ráðherra í síðdegisútvarpinu í dag en hann var viðmælandi Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar. Guðni bendir á að mikilvægt sé að fara yfir málið enda séu blikur á lofti “ á meðan menn segja að það gerist ekkert ef orkupakkinn verði samþykktur þá eru hér komnir norðmenn sem nú eru komnir í fiskeldið í fjörðunum með peningana, eru nú farnir að búa um sig í vindmyllugörðum hér á Íslandi, hér er allt frjálst á Íslandi um vindmyllur og engin lög, það hefur bara ekkert verið rætt um það„,segir Guðni.