Lilja Alfreðsdóttir mennta og menningarmálaráðherra segir mikilvægt að hafa gæðin að leiðarljósi við gerð nýrrar menntastefnu „Leiðarljós okkar verður gæðamenntun fyrir alla, á öllum skólastigum ,við viljum fá sem flesta að borðinu og vinna þessa stefnumótun í breiðu og góðu samráði. Það eru mikil sóknarfæri í íslensku menntakerfi, á mörgu góðu að byggja en nú er verkefnið að stilla saman strengi um stefnuna til framtíðar því lífsgæði okkar þá hvíla á ákvörðunum dagsins í dag.“
Eitt af markmiðum nýrrar menntastefnu verður meðal annars að tryggja að allir í skólasamfélaginu líti á skólastarf án aðgreiningar sem grundvöll gæðamenntunar fyrir alla nemendur í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar. Fram kemur í tilkynningu að sú stefna, sem sé kennd við menntun fyrir alla, hafi verið í endurmati og þróun síðastliðin ár og nú sé starfandi stýrihópur, á breiðum samstarfsgrundvelli, sem muni leiða þá vinnu áfram. Að henni koma mennta- og menningarmálaráðuneyti, velferðarráðuneyti, ráðuneyti félags- og jafnréttismála og heilbrigðismála, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, Kennarasamband Íslands, Skólameistarafélag Íslands, samtökin Heimili og skóli og Háskóli Íslands fyrir hönd kennaramenntastofnana.