Afar skiptar skoðanir eru um hvort stytta eigi vinnuvikuna hér á landi, en þó eru í við fleiri á þeirri skoðun að það eigi að gera.
Þetta kemur fram í skoðanakönnun Útvarps Sögu sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að stytta vinnuvikuna á Íslandi?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 53,8%
Nei 39,4%
Hlutlaus 6,8%