Áherslur Íslands í ferðaþjónustu kynntar á Grænlandi

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamálaráðherra, Hans Enoksen, atvinnu-, viðskipta- og orkumálaráðherra Grænlands og Bjørt Samuelsen þingmaður á færeyska lögþinginu.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamálaráðherra kynnti áherslur Íslands í ferðamálum á þemaráðstefnu Vestnorræna ráðsins sem haldin var í Ilulissat á Grænlandi í síðustu viku. Sagði Þórdís Kolbrún vöxt ferðaþjónustunnar hafa farið fram úr því sem Íslendingar hefðu stefnt að en stjórnvöld og atvinnugreinin sjálf hefðu náð að bregðast tiltölulega vel við með hliðsjón af umfangi breytinganna. Þá lýsti hún helstu verkefnum sem standa yfir og eru á döfinni.

Fulltrúar Grænlands og Færeyja kynntu áherslur sinna landa; þau Hans Enoksen, atvinnu-, viðskipta- og orkumálaráðherra Grænlands og Bjørt Samuelsen þingmaður á færeyska lögþinginu. Meðal þess sem hæst ber á Grænlandi er fyrirhuguð uppbygging flugvalla og í Færeyjum er töluvert rætt um eðli almannaréttar um frjálsa för í samhengi við ferðaþjónustu.

Á meðal annarra fyrirlesara á ráðstefnunni voru Ólöf Ýrr Atladóttir fyrrverandi ferðamálastjóri og Ragnhildur Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Svæðisgarðsins Snæfellsness.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila