Annar maður handtekinn vegna skotárásar í Breiðholti

loggubillMaður sem leitað hefur verið að vegna skotárásar við Iðufell í Breiðholti á föstudagskvöld var handtekinn í morgun í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Eins og kunnugt er var annar maður sem grunaður er um aðild að árásinni handtekinn á laugardag og var hann úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald á sunnudag. Maðurinn sem handtekinn var í morgun hefur verið færður til yfirheyrslu en ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um hvort krafist verði gæsluvarðhalds yfir honum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila