Baráttan gegn hryðjuverkum rædd á utanríkisráðherrafundi ÖSE


Guðlaugur Þór ásamt Sebastian Kurz, utanríkisráðherra Austurríkis, og Thomas Greminger, framkvæmdastjóra ÖSE.

Málefni Úkraínu, bárattan gegn hryðjuverkum og öfgahyggju og takmörkun vígbúnaðar voru ofarlega á baugi á utanríkisráðherrafundi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) sem haldinn var í Vínarborg í dag. Guðlaugur Þór Þórðarsson, utanríkisráðherra, sat fundinn og lagði í máli sínu áherslu á virðingu fyrir alþjóðalögum og mannréttindum, og að blásið verði frekara lífi í viðræður um takmörkun vígbúnaðar. Einnig hvatti ráðherra til samvinnu gegn öfgahyggju og hryðjuverkum og minnti á mikilvægi ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um konur, frið og öryggi. Þá átti utanríkisráðherra tvíhliða samtöl við Sebastian Kurz, utanríkisráðherra Austurríkis og handhafa formennsku í ÖSE, og Edward Nalbandian, utanríkisráðherra Armeníu, en 20 ár eru síðan stofnað var til stjórnmálasambands á milli Íslands og Armeníu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila