Borgarstjórar sóttu ráðstefnu og leiðtogaþjálfun í New York

Um 40 borgarstjórar víðsvegar að úr heiminum sóttu The Bloomberg Harvard City Leadership Initiative ráðstefnuna sem haldin var í New York í vikunni. Um er að ræða eins konar leiðtogaþjálfun og tók Dagur B. Eggertsson þátt í ráðstefnunni. Meðal annars var fjallað um forystu, teymisvinnu, nýsköpun, íbúalýðræði og gagnavinnslu til að bæta ákvarðanatöku í stjórnsýslunni. Fram kemur í tilkynningu að þetta sé í annað sinn sem leiðtogaþjálfun af þessum togar sé haldin fyrir borgarstjóra og aðra borgarleiðtoga. Vinnustofan er í heild til eins árs og að mestu kennd í fjarnámslotum við Harvard Business School og Harvard Kennedy School en það er góðgerðarstofnun Michael Bloomberg fyrrum borgarstjóra New York borgar sem stendur straum af kostnaði, þ.m.t. námskeiðsgjöldum, ferðum og gistingu. Auk borgarstjóranna er tveimur lykilstjórnendum frá hverri borg boðin þátttaka en markmið hennar er að efla með þátttakendum leiðtoga- og stjórnunarfærni og gefa þeim kost á að afla sér hagnýtrar þekkingar og tengsla sem nýtist þeim beint í starfi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila