Bótakerfi einstaklinga og fjölskyldna tekið til endurskoðunar

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað tvo hópa til að vinna að endurskoðun tekjuskatts- og bótakerfa hjá einstaklingum og fjölskyldum.
Fram kemur í tilkynningu að þessir hópar, þ.e. stefnumótandi stýrinefnd og sérfræðingahópur, séu stofnaðir í tengslum við yfirlýsingu ríkisstjórnarnar frá 27. febrúar 2018 um aðgerðir í þágu félagslegs stöðugleika í tengslum við gerð kjarasamninga á almennum markaði. Þar kemur fram að endurskoða eigi tekjuskattskerfið með áherslu á lækkun skattbyrði og mögulegar breytingar gerðar á fyrirkomulagi persónuafsláttar og samspili við bótakerfi sem ætlað er að styðja við tekjulægri hópa. Meðal þess sem skoðað verður að sett verði á fót heildstætt kerfi sem taki jafnt til stuðnings hins opinbera við barnafjölskyldur og stuðnings vegna húsnæðiskostnaðar, hvort heldur er fyrir íbúðareigendur eða leigjendur.

Í stýrinefndinni sitja eftirtaldir aðstoðarmenn þriggja ráðherra:

  • Páll Ásgeir Guðmundsson, aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra, sem verður formaður,
  • Bergþóra Benediktsdóttir, aðstoðarmaður forsætisráðherra
  • Arnar Þór Sævarsson, aðstoðarmaður félags- og jafnréttismálaráðherra.

Meginhlutverk stýrinefndarinnar er að fylgjast með framvindu verkefnisins í sérfræðingahópnum og taka þátt í mótun og samþykkt einstakra tillagna sem verða til á vettvangi sérfræðingahópsins. Stýrinefndin hefur reglulegt samráð við samtök launþega og aðra þá aðila sem hagsmuna eiga að gæta við tillögugerðina.

Í sérfræðingahópnum sitja eftirtaldir sérfræðingar:

  • Axel Hall, hagfræðingur og lektor í HR, sem verður formaður hópsins,
  • Benedikt Árnason, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu,
  • Elín Alma Arthúrsdóttir, sviðsstjóri hjá RSK,
  • Maríanna Jónasdóttir, skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu
  • Ólafur Darri Andrason, skrifstofustjóri í velferðarráðuneytinu

Sérfræðingahópurinn hefur það hlutverk að annast greiningu verkefnisins, talnalega meðferð og útfærslu tillagna, meðal annars á grundvelli fyrri skýrslna af sama meiði. Jafnframt skal horft til kerfa annarra landa, einkum Norðurlandanna. Búist er við að fyrstu tillögur hópanna liggi fyrir á haustmánuðum 2018.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila