Dómsmálaráðherra kynnti sér framkvæmd landamæraeftirlits í Leifsstöð

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra ásamt fulltrúum lögreglu og Isavia.

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra heimsótti bæði lögregluna á Suðurnesjum og Isavia ohf. í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á dögunum þar sem hún kynnti sér framkvæmd landamæraeftirlits. Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri, og Jón Pétur Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn tóku á móti ráðherra og fóru fyrir kynningu á starfsemi lögreglunnar þar en hún ber m.a. ábyrgð á framkvæmd landamæraeftirlits hér á landi. Við landamæraeftirlit er meðal annars skoðað hvort einstaklingur uppfylli skilyrði fyrir komu eða för yfir landamæri með framvísun gildra ferðaskilríkja, upplýsingagjöf um tilgang dvalar og fleira.

Fram kom við kynninguna að mörgu sé að hyggja á þessu sviði enda hafi landslagið breyst mikið að undanförnu með fordæmalausum straumi flóttamanna til Evrópu og fjölgun ferðamanna til og frá landinu. Þá kom fram að þann 10. júní síðastliðinn hafi verið tekin í notkun ný sjálfvirk landamærahlið við brottför í flugstöðinni að erlendri fyrirmynd en þau eiga að auka öryggi og skilvirkni við för yfir ytri landamæri. Ráðherra kynnti sér einnig starfsemi Isavia og ræddi þar við Björn Óla Hauksson, forstjóra Isavia. Isavia sér um rekstur flugvallarins og hefur aðkomu að ýmsum þáttum er varða aðstöðu lögreglu til að sinna landamæraeftirliti, t.d. aðstöðu til eftirlitsins, samskipti við flugfélög sem hingað fljúga og fleira. „Við áttum uppbyggilegt samtal þar sem ég lagði áherslu á gott samstarf milli lögreglu og stjórn flugvallarins varðandi ferðir manna um flugvellina, ekki bara í Keflavík, með tilliti til aukins álags á landamæraeftirlit,“ segir ráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila