Endurskoða regluverk um leigubílaakstur

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur skipað starfshóp til að endurskoða regluverk um leigubifreiðaakstur.  Markmið verkefnisins er að leigubifreiðaakstur hér á landi stuðli að góðu aðgengi og hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiðaþjónustu fyrir neytendur. Þá er markmiðið einnig að  tryggt sé að regluverkið sé í fyllsta samræmi við skuldbindingar íslenska ríkisins að EES-rétti. Danmörk, Finnland og Svíþjóð hafa endurskoðað leigubílalöggjöf sína undanfarin ár og fært hana í frjálsræðisátt. Hins vegar hefur löggjöfin á Íslandi og í Noregi um langa hríð verið óbreytt en hún er um margt svipuð í báðum ríkjum.
Þá er hópnum einnig falið að skoða ábendingar sem fram hafa komið að undanförnu um hvað nauðsynlegt sé að skoða, svo sem eftirlitsheimildir Samgöngustofu og viðurlagaákvæði, skilyrði atvinnuleyfis, t.d. hvað varðar aldur, orlofsréttindi, svokölluð ekkjuleyfi og fleira. Þá verði sérstaklega skoðað hvort rétt sé að gera ráð fyrir þjónustu á borð við Uber hér á landi og ef svo er hvaða breytingar séu nauðsynlegar á íslenskri löggjöf til að svo megi verða.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila