Fallist á tillögur nefnda Vísinda og tækniráðs

Vísindaráð ásamt ráðherrum.

Vísinda- og tækniráð hefur fallist á tillögur vísinda- og tækninefnda ráðsins um þær samfélagslegu áskoranir sem að mati þeirra sé mikilvægt sé að verði tekist á við á vettvangi íslenska vísindasamfélagsins. Niðurstöður opins samráðs voru kynntar á fundi ráðsins í gær og í kjölfarið staðfesti ráðið tillögu nefndanna um þrjú áherslusvið. Þau eru:

  • Umhverfismál og sjálfbærni
  • Heilsa og velferð
  • Líf og störf í heimi breytinga
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra segir mikilvægt að takast á þau verkefni sem falla undir áherslusviðin „Það er brýnt að skilgreina þær samfélagslegu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir og hvernig vísindin geta tekist á við þær. Ég tel mjög mikilvægt að þarna verður unnt að leiða saman þekkingu og styrkleika mismunandi fræðasviða. Við vitum að loftslagsbreytingar, fjórða iðnbyltingin og breytt aldurssamsetning þjóðarinnar munu hafa áhrif á líf okkar og samfélag og það er mikilvægt að vísindasamfélagið takist á við þessar breytingar.“
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra er á sama máli „Rannsóknir og nýsköpun vísa veginn þegar við tökumst á við samfélagslegar áskoranir. Það er dýrmætt fyrir Vísinda- og tækniráð að fá þá fram þessa forgangsröðun, hún mun lita stefnu okkar til framtíðar. Við viljum auka vitund um hlutverk og mikilvægi vísinda og efla þátttöku almennings í þekkingarsköpun, þar er háskólasamfélagið í lykilhlutverki.“
Vísinda- og tækninefndir ráðsins höfðu samráð við almenning, fulltrúa stjórnmálaflokka á Alþingi, vísindasamfélagið og atvinnulífið um greiningu samfélagslegra áskorana. Markmiðið var að fá fram fjölbreytt sjónarmið og ábendingar sem eflt geta forgangsröðun fjárfestinga í rannsóknum og nýsköpun hér á landi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila