Fjárveiting sett í verkefni sem miða að því að jafna aðgengi að heilsugæslu

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti á dögunum ákvörðun sína um að auka til muna fjármuni til að efla og þróa heilsugæsluþjónustu um allt land: „Markmiðið er ekki síst að jafna aðgengi landsmanna að þessari mikilvægu grunnþjónustu hvar sem fólk býr, efla gæði þjónustunnar og stuðla að nýjungum“ segir heilbrigðisráðherra.
Þetta verður gert með þeim hætti að setja á fót sérstaka Þróunarmiðstöð en Þróunarmiðstöðin mun leiða faglega þróun allar heilsugæsluþjónustu í landinu. Í tilkynningu segir að Þróunarmiðstöðin starfi innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Gert er ráð fyrir að árlegur rekstrarkostnaður verði áætlaður tæpar 230 milljónir króna, en13 stöðugildi verða við miðstöðina, með áherslu á breiða fagþekkingu
Fyrirrennari Þróunarmiðstöðvar heilsugæslunnar er Þróunarstofa Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem starfrækt hefur verið innan stofnunarinnar frá árinu 2009. Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar á landsvísu mun byggja á grunni hennar, en fær aukið sjálfstæði, víðtækara hlutverk og mun sem fyrr segir leiða faglega þróun allrar heilsugæsluþjónustu í landinu, hvort sem hún er veitt af hinu opinbera eða einkarekin.
Þá segir að auk þess að stuðla að nýjungum og þróun þjónustuúrræða í samræmi við helstu áskoranir á sviði lýðheilsu muni Þróunarmiðstöðin annast innleiðingu gæðavísa, leiða samstarf á sviði rannsókna og stuðla að því að sérhæfð þekking fagfólks heilsugæslunnar um allt land nýtist sem best. Samræming og samhæfing þjónustu á landsvísu er eitt af meginmarkmiðunum með stofnun miðstöðvarinnar, þannig að betur megi tryggja jafnræði landsmanna og aðgang þeirra að sambærilegri heilsugæsluþjónustu, hvar sem fólk býr.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila