Formaður hermálanefndar NATO fundaði með embættismönnum í Reykjavík

stefanogpetrFormaður hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins, Petr Pavel hershöfðingi sem staddur er á Íslandi fundaði í gærmorgun með Stefáni Hauki Jóhannnessyni ráðuneytisstjóra utanrikisráðuneytisins, auk þess sem hann hitti aðra embættismenn ráðuneytisins, forstjóra Landhelgisgæslunnar og starfsmenn hennar.
Á fundunum var rætt um stöðu alþjóðlegra öryggismála og þau verkefni sem Atlantshafsbandalagsið glímir við í ljósi breyttra aðstæðna í öryggismálum Evrópu. Rædd voru störf, stuðningur og framlög Íslands á vettvangi bandalagsins, m.a. til samstöðuaðgerða, í Afganistan, á vettvangi bandalagsins sjálfs og á Íslandi, þ.m.t. rekstur íslenska loftvarnarkerfisins.
Þá hélt formaður hermálanefndarinnar einnig hádegisfyrirlestur í Norræna húsinu í boði Varðbergs, þar sem hann fjallaði um nýjar áskoranir í Norður-Evrópu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila