Frumvarp um breytingar á lögum um tjáningarfrelsi lagt fram á Alþingi

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp forsætisráðherra um breytingu á lögumum tjáningarfrelsi og þagnarskyldu opinberra starfsmanna.
Í tilkynningu segir að með frumvarpinu sé lagt til að nýr kafli bætist við stjórnsýslulög þar sem lögfest verði ákvæði um að opinberir starfsmenn hafi að meginreglu frelsi til að tjá sig opinberlega um atriði er tengjast starfi þeirra, svo fremi sem þagnarskylda eða trúnaðarskyldur standi því ekki í vegi.
Þá er nánar kveðið á um inntak þagnarskyldu með það að markmiði að skýrara verði hvenær opinberir starfsmenn mega tjá sig og hvenær ekki. Loks er lagt til að þagnarskylduákvæðum rúmlega 80 lagabálka verði breytt þannig að þau vísi til þessa nýja kafla stjórnsýslulaganna og þannig lagður grundvöllur að meiri lagaeiningu og fyrirsjáanleika um beitingu þagnarskylduákvæða í íslenskum rétti.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila