Gústaf Níelsson leiðir lista Íslensku þjóðfylkingarinnar í Reykjavík Norður

gustafn2Íslenska þjóðfylkingin hefur birt uppröðun á tíu efstu sætum lista flokksins í Reykjavíkur kjördæmi Norður. Efsta sæti listans skipar Gústaf Níelsson sagnfræðingur en hann tilkynnti fyrir skömmu að hann ætlaði að bjóða sig fram undir merkjum flokksins. Annað sæti listans skipar Inga Guðrún Halldórsdóttir félagsliði og í þriðja sæti situr Svanhvít Brynja Tómasdóttir öryrki. Eins og fyrr segir hefur skipan í fyrstu tíu sæti listans verið birt en listann má sjá hér fyrir neðan.

 

 

1. Gústaf Níelsson, sagnfræðingur, Reykjavík
2. Inga Guðrún Halldórsdóttir, félagsliði, Reykjavík
3. Svanhvít Brynja Tómasdóttir, öryrki, Reykjavík
4. Marteinn Unnar Heiðarsson, bifreiðastjóri, Reykjavík
5. Ágúst Örn Gíslason, ráðgjafi, Reykjavík
6. Hanna Björg Guðjónsdóttir, vaktstjóri, Reykjavík
7. Magnús Sigmundsson, rafiðnfræðingur, Reykjavík
8. Cirila Rós Jamora, snyrtifræðingur, Reykjavík
9. Kristinn Snæland, eldri borgari, Reykjavík
10. Guðmundur Jónas Kristjánsson, bókari, Reykjavík

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila