Hafa áhyggjur af þekkingarleysi Heiðu Bjargar

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.

Stjórnarandstöðuflokkarnir í borgarstjórn Reykjavíkur auk Ragnars Þórs Ingólfssonar formanns VR hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna ummæla Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarfulltrúa Samfylkingarinnar um 1000 íbúðir sem Heiða Björg heldur fram að verið sé að byggja í Reykjavík á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga. Í tilkynningunni segir að fullyrðingar Heiðu séu rangar og að hið rétta sé að aðeins sé um 256 íbúðir sé að ræða. Yfirlýsinguna má lesa í heild hér að neðan.

Sameiginleg yfirlýsing stjórnarandstöðuflokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur og formanns VR

Stjórnarandstöðuflokkarnir í borgarstjórn Reykjavíkur, Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Sósíalistaflokkurinn, og formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, lýsa yfir áhyggjum af þekkingarleysi formanns velferðarráðs Reykjavíkur og varaformanns Samfylkingarinnar, Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, á húsnæðismarkaðnum í Reykjavík.
 
Tilefnið er ummæli hennar í þættinum Vikulokunum á Rás 1 í morgun, þar sem hún sagði 1000 íbúðir í byggingu á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga. Þetta er rangt. Hið rétta er að 256 íbúðir, svo vitað sé, eru í byggingu á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga í Reykjavík og hefur borgin gefið út 551 byggingarleyfi til handa slíkum leigufélögum, sem er víðs fjarri þeim 1000 íbúðum sem formaður velferðarráðs, Heiða Björg Hilmisdóttir, heldur fram að séu í byggingu.
 
Þá hafnaði formaður velferðarráðs jafnframt þeirri staðreynd að byggingaréttargjald hefði áhrif á leiguverð í Reykjavík. Á meðan staðreyndin er sú að byggingarréttargjaldið, sem er 45.000 kr. á hvern fermetra, veldur verulegum töfum á byggingu leiguíbúða í Reykjavík en gjaldið leggst á leiguverð sem eykur greiðslubyrði leigjanda til muna og getur gjaldið numið hundruðum þúsunda árlega fyrir hverja íbúð.
 
Þessi ummæli formanns velferðarráðs undirstrika skilningsleysið á þeim brýna húsnæðisvanda sem er í Reykjavík. Stjórnarandstöðuflokkarnir í borgarstjórn Reykjavíkur, hafa nú þegar lagt fram tillögur til lausnar vandans en þær tillögur hafa því miður ekki náð fram að ganga. Stjórnarandstöðuflokkarnir og formaður VR skora á meirihlutaflokkana í borginni að bregðast við vandanum með því að taka undir tillögur stjórnarandstöðuflokkanna í húsnæðismálum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila