Handtekinn fyrir að blekkja lögreglu, tilkynnti um vopnaðan mann

loggubillinn834Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í gærkvöld fyrir að hafa blekkt lögreglu með því að tilkynna um vopnaðan mann í Bryggjuhverfi. Tilkynning mannsins varð meðal annars til þess að sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út og hluta Bryggjuhverfis lokað. Aðgerðir lögreglu við Bryggjuhverfi stóðu yfir í um þrjár klukkustundir en þegar ljóst varð hvers kyns var leitaði lögreglan að tilkynnandanum og handtók hann. Hann reyndist óvopnaður.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila