Haukur til liðs við síðdegisútvarpið

haukurhauksHaukur Hauksson fréttamaður er nýr liðsmaður síðdegisútvarpsins á Útvarpi Sögu. Haukur er hlustendum Útvarps Sögu að góðu kunnur en hann hefur um árabil flutt hlustendum tíðindi af öllum heitustu málunum í heiminum hverju sinni. Þá hafa frásagnir hans af málefnum Rússlands vakið verðskuldaða athygli, enda hefur Haukur mikla og víðtæka þekkingu á rússneskum stjórnmálum. Í dag verður Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokksins og formaður fjárlaganefndar gestur Hauks og munu þau ræða öll helstu málefni líðandi stundar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila