Hefja átak um betri merkingar matvæla

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Bændasamtök Íslands, Neytendasamtökin, Samtök verslunar og þjónustu og Samtök iðnaðarins undirrituðu í gær samkomulag um að gera gangskör í því að bæta merkingar á matvælum og tryggja þannig betur rétt neytenda til upplýsinga um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif þeirra.
Fram kemur í tilkynningu að skipaður verði samráðshópur með fulltrúum neytenda, bænda og verslunar og er hlutverk hans að ráðast í átaksverkefni um merkingar og hvernig betur megi upplýsa neytendur og fyrirtæki um réttindi og skyldur á skýran og einfaldan hátt, í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar. Þá segir að verkefnið muni standa yfir tímabundið í eitt ár og að þeim tíma liðnum verður árangurinn metinn og ákvörðun tekin um framhaldið.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila