Heilbrigði meltingarfæra hefur mikil áhrif á aðra líkamlega heilsu

Anna Björg Hjartardóttir eigandi og framkvæmdastjóri Celsus.

Heilbrigði meltingarfæra hefur meiri líkamleg áhrif á aðra þætti líkamlegrar heilsu en marga grunar. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Önnu Bjargar Hjartardóttur eiganda og framkvæmdastjóra Celsus í síðdegisútvarpinu á föstudag en hún var gestur Edithar Alvarsdóttur. Anna bendir á að meltingin geti haft áhrif t,d á þá þætti heilsunnar sem eru okkur mikilvægastir “ eins og til dæmis ónæmiskerfið, hjartað, andlega líðan og jafnframt því hvort við nýtum fæðuna og næringarefnin kannski mjög illa„. Celsus hefur um árabil haft á boðstólnum vörur sem stuðla meðal annars að bættri meltingu og hefur vörunum verið afar vel tekið. Fyrir áhugasama er hægt að kynna sér úrvalið á heimasíðu Celsus með því að smella hér. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila